Jesaja 8 - Icelandic Bible 1981

Táknrænt nafn

1Drottinn sagði við mig: “Tak þér stórt spjald og rita þú á það með algengu letri: Hraðfengi Skyndirán.

2Og tak mér skilríka votta, prestinn Úría og Sakaría Jeberekíason.”

3Og ég nálgaðist spákonuna, og hún varð þunguð og ól son. Þá sagði Drottinn við mig: “Lát þú hann heita Hraðfengi Skyndirán.

4Því að áður en sveinninn lærir að kalla ‘faðir minn’ og ‘móðir mín,’ skal auður Damaskus og herfang Samaríu burt flutt verða fram fyrir Assýríukonung.”

Hin straumhægu vötn og hin stríðu

5Og Drottinn talaði enn við mig og sagði:

6Af því að þessi lýður fyrirlítur hin straumhægu Sílóa-vötn, en fagnar Resín og Remaljasyni,

7sjá, fyrir því mun Drottinn láta yfir þá koma hin stríðu og miklu vötn fljótsins - Assýríukonung og allt hans einvalalið. Skal það ganga upp yfir alla farvegu sína og flóa yfir alla bakka.

8Og það skal brjótast inn í Júda, flæða þar yfir og geysast áfram, þar til manni tekur undir höku, og breiða vængi sína yfir allt þitt land, eins og það er vítt til, Immanúel!

Guð er með oss

9Vitið það, lýðir, og hlustið á, allar fjarlægar landsálfur! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast!

10Takið saman ráð yðar, þau skulu að engu verða. Mælið málum yðar, þau skulu engan framgang fá, því að Guð er með oss!

Guð einn ber að óttast

11Svo mælti Drottinn við mig, þá er hönd hans hreif mig og hann varaði mig við því að ganga sama veg og þetta fólk gengur:

12Þér skuluð ekki kalla allt það ‘samsæri’, sem þetta fólk kallar ‘samsæri’, og ekki óttast það, sem það óttast, og eigi skelfast.

13Drottinn allsherjar, hann skuluð þér telja heilagan, hann sé yður ótti, hann sé yður skelfing.

14Og hann skal verða helgidómur og ásteytingarsteinn og hrösunarhella fyrir báðar ættþjóðir Ísraels og snara og gildra fyrir Jerúsalembúa.

15Og margir af þeim munu hrasa, falla og meiðast, festast í snörunni og verða veiddir.

Spámaðurinn dregur sig í hlé

16Ég bind saman vitnisburðinn og innsigla kenninguna hjá lærisveinum mínum.

17Ég treysti Drottni, þótt hann byrgi nú auglit sitt fyrir Jakobs niðjum, og ég bíð hans.

18Sjá, ég og synirnir, sem Drottinn hefir gefið mér, vér erum til tákns og jarteikna í Ísrael frá Drottni allsherjar, sem býr á Síonfjalli.

Varað við andasæringum

19Ef þeir segja við yður: “Leitið til andasæringarmanna og spásagnarmanna, sem hvískra og umla! - Á ekki fólk að leita frétta hjá guðum sínum og leita til hinna dauðu vegna hinna lifandi?” -

20þá svarið þeim: “Til kenningarinnar og vitnisburðarins!”

Ef menn tala ekki samkvæmt þessu orði, hafa þeir engan morgunroða

21og munu ráfa hrjáðir og hungraðir. Og er þá hungrar munu þeir fyllast bræði og formæla konungi sínum og Guði sínum. Hvort sem horft er til himins

22eða litið til jarðar, sjá, þar er neyð og myrkur. Í angistarsorta og niðdimmu eru þeir útreknir.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help