1Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur.
2Ég tigna þig, Drottinn, því að þú hefir bjargað mér
og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.
3Drottinn, Guð minn,
ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.
4Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju,
lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.
5Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu,
vegsamið hans heilaga nafn.
6Andartak stendur reiði hans,
en alla ævi náð hans.
Að kveldi gistir oss grátur,
en gleðisöngur að morgni.
7En ég uggði eigi að mér og hugsaði:
“Aldrei skriðnar mér fótur.”
8Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt,
en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist.
9Til þín, Drottinn, kallaði ég,
og Drottin grátbændi ég:
10“Hver ávinningur er í dauða mínum,
í því að ég gangi til grafar?
Getur duftið lofað þig,
kunngjört trúfesti þína?
11Heyr, Drottinn, og líkna mér,
ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!”
12Þú breyttir grát mínum í gleðidans,
leystir af mér hærusekkinn
og gyrtir mig fögnuði,
13að sál mín megi lofsyngja þér
og eigi þagna.
Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.