Sálmarnir 36 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins.

2Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans,

enginn guðsótti býr í huga hans.

3Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans

og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.

4Orðin af munni hans eru tál og svik,

hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.

5Í hvílu sinni hyggur hann á tál,

hann fetar vonda vegu,

forðast eigi hið illa.

6Drottinn, til himna nær miskunn þín,

til skýjanna trúfesti þín.

7Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs,

dómar þínir sem reginhaf.

Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.

8Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð,

mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.

9Þau seðjast af feiti húss þíns,

og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.

10Hjá þér er uppspretta lífsins,

í þínu ljósi sjáum vér ljós.

11Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig,

og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.

12Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér

né hönd óguðlegra hrekja mig burt.

13Þar eru illgjörðamennirnir fallnir,

þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help