Ljóðaljóðin 3 - Icelandic Bible 1981

1Í hvílu minni um nótt leitaði ég hans sem sál mín elskar,

ég leitaði hans, en fann hann ekki.

2Ég skal fara á fætur og ganga um borgina,

um strætin og torgin.

Ég skal leita hans, sem sál mín elskar!

Ég leitaði hans, en fann hann ekki.

3Verðirnir, sem ganga um borgina, hittu mig.

“Hafið þér séð þann sem sál mín elskar?”

4Óðara en ég var frá þeim gengin,

fann ég þann sem sál mín elskar.

Ég þreif í hann og sleppi honum ekki,

fyrr en ég hefi leitt hann í hús móður minnar

og í herbergi hennar er mig ól.

5Ég særi yður, Jerúsalemdætur, við skógargeiturnar

eða við hindirnar í haganum:

Vekið ekki, vekið ekki elskuna,

fyrr en hún sjálf vill.

6Hvað er það, sem kemur úr heiðinni

eins og reykjarsúlur,

angandi af myrru og reykelsi,

af alls konar kaupmannskryddi?

7Það er burðarrekkja Salómons,

sextíu kappar kringum hana

af köppum Ísraels.

8Allir með sverð í hendi,

vanir hernaði,

hver og einn með sverð við lend

vegna næturóttans.

9Burðarstól lét Salómon konungur gjöra sér

úr viði frá Líbanon.

10Stólpa hans lét hann gjöra af silfri,

bakið úr gulli,

sætið úr purpuradúk,

lagt hægindum að innan

af elsku Jerúsalemdætra.

11Gangið út, Síonardætur, og horfið á

Salómon konung,

á sveiginn sem móðir hans hefir krýnt hann

á brúðkaupsdegi hans

og á gleðidegi hjarta hans.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help