Sálmarnir 13 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Davíðssálmur.

2Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að gleyma mér með öllu?

Hversu lengi ætlar þú að hylja auglit þitt fyrir mér?

3Hversu lengi á ég að bera sút í sál,

harm í hjarta dag frá degi?

Hversu lengi á óvinur minn að hreykja sér upp yfir mig?

4Lít til, svara mér, Drottinn, Guð minn,

hýrga augu mín, að ég sofni ekki svefni dauðans,

5að óvinur minn geti ekki sagt: “Ég hefi borið af honum!”

að fjandmenn mínir geti ekki fagnað yfir því, að mér skriðni fótur.

6Ég treysti á miskunn þína;

hjarta mitt fagnar yfir hjálp þinni.

Ég vil syngja fyrir Drottni, því að hann hefir gjört vel til mín.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help