Sálmarnir 38 - Icelandic Bible 1981

1Davíðssálmur. Minningarljóð.

2Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni

og tyfta mig ekki í gremi þinni.

3Örvar þínar standa fastar í mér,

og hönd þín liggur þungt á mér.

4Enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum

sakir reiði þinnar,

ekkert heilt í beinum mínum

sakir syndar minnar.

5Misgjörðir mínar ganga mér yfir höfuð,

sem þung byrði eru þær mér of þungar orðnar.

6Ódaun leggur af sárum mínum, rotnun er í þeim

sakir heimsku minnar.

7Ég er beygður og mjög bugaður,

ráfa um harmandi daginn langan.

8Lendar mínar eru fullar bruna,

og enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum.

9Ég er lémagna og kraminn mjög,

kveina af angist hjartans.

10Drottinn, öll mín þrá er þér kunn

og andvörp mín eru eigi hulin þér.

11Hjarta mitt berst ákaft, kraftur minn er þrotinn,

jafnvel ljós augna minna er horfið mér.

12Ástvinir mínir og kunningjar hörfa burt fyrir kröm minni,

og frændur mínir standa fjarri.

13Þeir er sitja um líf mitt, leggja snörur fyrir mig,

þeir er leita mér meins, mæla skaðræði

og hyggja á svik allan liðlangan daginn.

14En ég er sem daufur, ég heyri það ekki,

og sem dumbur, er eigi opnar munninn,

15ég er sem maður er eigi heyrir

og engin andmæli eru í munni hans.

16Því að á þig, Drottinn, vona ég,

þú munt svara mér, Drottinn minn og Guð minn,

17því að ég segi: “Lát þá eigi hlakka yfir mér,

eigi hælast um af því, að mér skriðni fótur.”

18Því að ég er að falli kominn,

og þjáningar mínar eru mér æ fyrir augum.

19Ég játa misgjörð mína,

harma synd mína,

20og þeir sem án saka eru óvinir mínir, eru margir,

fjölmargir þeir er hata mig að ástæðulausu.

21Þeir gjalda mér gott með illu,

sýna mér fjandskap, af því ég legg stund á það sem gott er.

22Yfirgef mig ekki, Drottinn,

Guð minn, ver ekki fjarri mér,

23skunda til liðs við mig,

Drottinn, þú hjálp mín.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help