Sálmarnir 24 - Icelandic Bible 1981

1Davíðssálmur.

Drottni heyrir jörðin og allt sem á henni er,

heimurinn og þeir sem í honum búa.

2Því að hann hefir grundvallað hana á hafinu

og fest hana á vötnunum.

3- Hver fær að stíga upp á fjall Drottins,

hver fær að dveljast á hans helga stað?

4- Sá er hefir óflekkaðar hendur og hreint hjarta,

eigi sækist eftir hégóma

og eigi vinnur rangan eið.

5Hann mun blessun hljóta frá Drottni

og réttlætingu frá Guði hjálpræðis síns.

6- Þessi er sú kynslóð er leitar Drottins,

stundar eftir augliti þínu,

þú Jakobs Guð. [Sela]

7- Þér hlið, lyftið höfðum yðar,

hefjið yður, þér öldnu dyr,

að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.

8- Hver er þessi konungur dýrðarinnar?

- Það er Drottinn, hin volduga hetja,

Drottinn, bardagahetjan.

9- Þér hlið, lyftið höfðum yðar,

hefjið yður, þér öldnu dyr,

að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.

10- Hver er þessi konungur dýrðarinnar?

- Drottinn hersveitanna,

hann er konungur dýrðarinnar. [Sela]

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help