Orðskviðirnir 8 - Icelandic Bible 1981

Spekin tekur til máls

1Heyr, spekin kallar

og hyggnin lætur raust sína gjalla.

2Uppi á hæðunum við veginn,

þar sem göturnar kvíslast - stendur hún.

3Við hliðin, þar sem gengið er út úr borginni,

þar sem gengið er inn um dyrnar, kallar hún hátt:

4Til yðar, menn, tala ég,

og raust mín hljómar til mannanna barna.

5Þér óreyndu, lærið hyggindi,

og þér heimskingjar, lærið skynsemi.

6Hlýðið á, því að ég tala það sem göfuglegt er,

og varir mínar tjá það sem rétt er.

7Því að sannleika mælir gómur minn

og guðleysi er viðbjóður vörum mínum.

8Einlæg eru öll orð munns míns,

í þeim er ekkert fals né fláræði.

9Öll eru þau einföld þeim sem skilning hefir,

og blátt áfram fyrir þann sem hlotið hefir þekkingu.

10Takið á móti ögun minni fremur en á móti silfri

og fræðslu fremur en úrvals gulli.

11Því að viska er betri en perlur,

og engir dýrgripir jafnast á við hana.

12Ég, spekin, er handgengin hyggindunum

og ræð yfir ráðdeildarsamri þekking.

13Að óttast Drottin er að hata hið illa,

drambsemi og ofdramb og illa breytni

og fláráðan munn - það hata ég.

14Mín er ráðspekin og framkvæmdarsemin,

ég er hyggnin, minn er krafturinn.

15Fyrir mína hjálp ríkja konungarnir

og úrskurða höfðingjarnir réttvíslega.

16Fyrir mína hjálp stjórna stjórnendurnir

og tignarmennin - allir valdsmenn á jörðu.

17Ég elska þá sem mig elska,

og þeir sem leita mín, finna mig.

18Auður og heiður eru hjá mér,

ævagamlir fjármunir og réttlæti.

19Ávöxtur minn er betri en gull og gimsteinar

og eftirtekjan eftir mig betri en úrvals silfur.

20Ég geng á götu réttlætisins,

á stigum réttarins miðjum,

21til þess að gefa þeim sanna auðlegð, er elska mig,

og fylla forðabúr þeirra.

22Drottinn skóp mig í upphafi vega sinna,

á undan öðrum verkum sínum, fyrir alda öðli.

23Frá eilífð var ég sett til valda,

frá upphafi, áður en jörðin var til.

24Ég fæddist áður en hafdjúpin urðu til,

þá er engar vatnsmiklar lindir voru til.

25Áður en fjöllunum var hleypt niður,

á undan hæðunum fæddist ég,

26áður en hann skapaði völl og vengi

og fyrstu moldarkekki jarðríkis.

27Þegar hann gjörði himininn, þá var ég þar,

þegar hann setti hvelfinguna yfir hafdjúpið,

28þegar hann festi skýin uppi,

þegar uppsprettur hafdjúpsins komust í skorður,

29þegar hann setti hafinu takmörk,

til þess að vötnin færu eigi lengra en hann bauð,

þegar hann festi undirstöður jarðar.

30Þá stóð ég honum við hlið sem verkstýra,

og ég var yndi hans dag hvern,

leikandi mér fyrir augliti hans alla tíma,

31leikandi mér á jarðarkringlu hans,

og hafði yndi mitt af mannanna börnum.

32Og nú, þér yngismenn, hlýðið mér,

því að sælir eru þeir, sem varðveita vegu mína.

33Hlýðið á aga, svo að þér verðið vitrir,

og látið hann eigi sem vind um eyrun þjóta.

34Sæll er sá maður, sem hlýðir mér,

sem vakir daglega við dyr mínar

og geymir dyrastafa minna.

35Því að sá sem mig finnur, finnur lífið

og hlýtur blessun af Drottni.

36En sá sem missir mín, skaðar sjálfan sig.

Allir þeir, sem hata mig, elska dauðann.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help