Sálmarnir 70 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Minningarljóð.

2Guð, lát þér þóknast að frelsa mig,

Drottinn, skunda mér til hjálpar.

3Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða,

er sitja um líf mitt,

lát þá hverfa aftur með skömm,

er óska mér ógæfu.

4Lát þá hörfa undan sakir smánar sinnar,

er hrópa háð og spé.

5En allir þeir er leita þín,

skulu gleðjast og fagna yfir þér,

þeir er unna hjálpræði þínu,

skulu sífellt segja: “Vegsamaður sé Guð!”

6Ég er þjáður og snauður,

hraða þér til mín, ó Guð.

Þú ert fulltingi mitt og frelsari,

dvel eigi, Drottinn!

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help