1Ég hafði gjört sáttmála við augu mín;
hvernig hefði ég þá átt að líta til yngismeyjar?
2Og hvert væri þá hlutskiptið frá Guði hér að ofan
og arfleifðin frá hinum Almáttka af hæðum?
3Er það ekki glötun fyrir glæpamanninn
og ógæfa fyrir þá, er illt fremja?
4Sér hann ekki vegu mína,
og telur hann ekki öll mín spor?
5Hafi ég gengið með lyginni
og fótur minn hraðað sér til svika -
6vegi Guð mig á rétta vog,
til þess að hann viðurkenni sakleysi mitt! -
7hafi spor mín vikið af leið,
hjarta mitt farið eftir fýsn augna minna
og flekkur loðað við hendur mínar,
8þá eti annar það, sem ég sái,
og frjóangar mínir verði rifnir upp með rótum.
9Hafi hjarta mitt látið ginnast vegna einhverrar konu,
og hafi ég staðið á hleri við dyr náunga míns,
10þá mali kona mín fyrir annan,
og aðrir menn leggist með henni.
11Því að slíkt væri óhæfa
og glæpur, sem dómurum ber að hegna fyrir,
12því að það væri eldur, sem eyðir ofan í undirdjúpin
og hlyti að uppræta allar eigur mínar.
13Hafi ég lítilsvirt rétt þjóns míns eða þernu minnar,
þá er þau áttu í deilu við mig,
14hvað ætti ég þá að gjöra, þegar Guð risi upp,
og hverju svara honum, þegar hann rannsakaði?
15Hefir eigi sá er mig skóp, skapað þjón minn í móðurlífi,
og hefir ekki hinn sami myndað okkur í móðurkviði?
16Hafi ég synjað fátækum bónar
og látið augu ekkjunnar daprast,
17hafi ég etið bitann minn einn;
og munaðarleysinginn ekkert fengið af honum -
18nei, frá barnæsku minni hefir hann vaxið upp hjá mér sem hjá föður
og frá móðurlífi hefi ég leitt hann -
19hafi ég séð aumingja klæðlausan
og snauðan mann ábreiðulausan,
20hafi lendar hans ekki blessað mig
og hafi honum ekki hitnað við ullina af sauðum mínum;
21hafi ég reitt hnefann að munaðarleysingjanum,
af því að ég sá mér liðsvon í borgarhliðinu,
22þá detti axlir mínar frá herðunum
og handleggur minn brotni úr axlarliðnum.
23Því að glötunin frá Guði var mér skelfileg,
og gegn hátign hans megna ég ekkert.
24Hafi ég gjört gullið að athvarfi mínu
og nefnt skíragullið fulltrúa minn,
25hafi ég glaðst yfir því, að auður minn var mikill
og að hönd mín aflaði svo ríkulega,
26hafi ég horft á sólina, hversu hún skein,
og á tunglið, hversu dýrlega það óð áfram,
27og hafi hjarta mitt þá látið tælast í leynum,
svo að ég bæri hönd að munni og kyssti hana,
28það hefði líka verið hegningarverð synd,
því að þá hefði ég afneitað Guði á hæðum.
29Hafi ég glaðst yfir óförum fjandmanns míns
og hlakkað yfir því, að ógæfa kom yfir hann -
30nei, aldrei hefi ég leyft munni mínum svo að syndga
að ég með formælingum óskaði dauða hans.
31Hafa ekki heimilismenn mínir sagt:
“Hvenær hefir nokkur farið ósaddur frá borði hans?”
32ég lét ekki aðkomumann nátta á bersvæði,
heldur opnaði ég dyr mínar fyrir ferðamanninum.
33Hafi ég hulið yfirsjónir mínar, eins og menn gjöra,
og falið misgjörð mína í brjósti mínu,
34af því að ég hræddist mannfjöldann,
og af því að fyrirlitning ættanna fældi mig,
svo að ég hafði hægt um mig og fór ekki út fyrir dyr,
38hafi akurland mitt hrópað undan mér
og öll plógför þess grátið,
39hafi ég etið gróður þess endurgjaldslaust
og slökkt líf eiganda þess,
40þá spretti þyrnar upp í stað hveitis
og illgresi í stað byggs.
35Ó að ég hefði þann, er hlusta vildi á mig!
Hér er undirskrift mín - hinn Almáttki svari mér!
Sá sem mig ákærir, skrifi sitt ákæruskjal!
36Vissulega skyldi ég bera það á öxlinni,
binda það sem höfuðsveig um ennið,
37ég skyldi segja Guði frá hverju spori mínu
og ganga sem höfðingi fram fyrir hann!
Hér enda ræður Jobs.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.