Sálmarnir 129 - Icelandic Bible 1981

1Helgigönguljóð.

Þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku,

- skal Ísrael segja -

2þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku,

en þó eigi borið af mér.

3Plógmennirnir hafa plægt um hrygg mér,

gjört plógför sín löng,

4en Drottinn hinn réttláti hefir skorið í sundur

reipi óguðlegra.

5Sneypast skulu þeir og undan hörfa,

allir þeir sem hata Síon.

6Þeir skulu verða sem gras á þekju,

er visnar áður en það frævist.

7Sláttumaðurinn skal eigi fylla hönd sína

né sá fang sitt sem bindur,

8og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja:

“Blessun Drottins sé með yður.”

Vér blessum yður í nafni Drottins!

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help