1Æ, hversu hylur Drottinn í reiði sinni
dótturina Síon skýi.
Frá himni varpaði hann til jarðar
vegsemd Ísraels
og minntist ekki fótskarar sinnar
á degi reiði sinnar.
2Vægðarlaust eyddi Drottinn
öll beitilönd Jakobs,
reif niður í bræði sinni
vígi Júda-dóttur,
varpaði til jarðar, vanhelgaði
ríkið og höfðingja þess,
3hjó af í brennandi reiði
öll horn Ísraels,
dró að sér hægri hönd sína
frammi fyrir óvinunum
og brenndi Jakob eins og eldslogi,
sem eyðir öllu umhverfis.
4Hann benti boga sinn eins og óvinur,
hægri hönd hans stóð föst eins og mótstöðumaður
og myrti allt sem auganu var yndi
í tjaldi dótturinnar Síon,
jós út heift sinni eins og eldi.
5Drottinn kom fram sem óvinur,
eyddi Ísrael,
eyddi allar hallir hans,
umturnaði virkjum hans
og hrúgaði upp í Júda-dóttur
hryggð og harmi.
6Hann hefir rifið niður skála sinn eins og garð,
umturnað hátíðastað sínum.
Drottinn lét gleymast í Síon
hátíðir og hvíldardaga
og útskúfaði í sinni áköfu reiði
konungi og prestum.
7Drottinn hefir hafnað altari sínu,
smáð helgidóm sinn,
ofurselt í óvina hendur
hallarmúra hennar.
Þeir létu óp glymja í musteri Drottins
eins og á hátíðardegi.
8Drottinn hafði ásett sér að eyða
múr dótturinnar Síon.
Hann útþandi mælivaðinn, aftraði eigi
hendi sinni að eyða
og steypti sorg yfir varnarvirki og múr,
þau harma bæði saman.
9Hlið hennar eru sokkin í jörðu,
hann ónýtti og braut slagbranda hennar.
Konungur hennar og höfðingjar eru meðal heiðingjanna,
lögmálslausir,
spámenn hennar fá ekki heldur framar
vitranir frá Drottni.
10Þeir sitja þegjandi á jörðinni,
öldungar dótturinnar Síon,
þeir hafa ausið mold yfir höfuð sín,
gyrst hærusekk,
höfuð létu hníga að jörðu
Jerúsalem-meyjar.
11Augu mín daprast af gráti,
iður mín ólga,
hjarta mitt ætlar að springa
yfir tortíming dóttur þjóðar minnar,
er börn og brjóstmylkingar hníga magnþrota
á strætum borgarinnar.
12Þau segja við mæður sínar:
“Hvar er korn og vín?”
er þau hníga magnþrota eins og dauðsærðir menn
á strætum borgarinnar,
er þau gefa upp öndina
í faðmi mæðra sinna.
13Hvað á ég að taka til dæmis um þig, við hvað líkja þér,
þú dóttirin Jerúsalem?
Hverju á ég að jafna við þig til að hugga þig,
þú mærin, dóttirin Síon?
Já, sár þitt er stórt eins og hafið,
hver gæti læknað þig?
14Spámenn þínir birtu þér
tálsýnir og hégóma,
en drógu ekki skýluna af misgjörð þinni
til þess að snúa við högum þínum,
heldur birtu þér spár
til táls og ginninga.
15Yfir þér skelltu lófum saman
allir þeir er um veginn fóru,
blístruðu og skóku höfuðið
yfir dótturinni Jerúsalem:
“Er þetta borgin, hin alfagra,
unun allrar jarðarinnar?”
16Yfir þér glenntu upp ginið
allir óvinir þínir,
blístruðu og nístu tönnum,
sögðu: “Vér höfum gjöreytt hana!
Já, eftir þessum degi höfum vér beðið,
vér höfum lifað hann, vér höfum séð hann!”
17Drottinn hefir framkvæmt það, er hann hafði ákveðið,
efnt orð sín,
þau er hann hefir boðið frá því forðum daga,
hefir rifið niður vægðarlaust
og látið óvinina fagna yfir þér,
hann hóf horn fjenda þinna.
18Hrópa þú hátt til Drottins,
þú mærin, dóttirin Síon.
Lát tárin renna eins og læk
dag og nótt,
unn þér engrar hvíldar,
auga þitt láti ekki hlé á verða.
19Á fætur! Kveina um nætur,
í byrjun hverrar næturvöku,
úthell hjarta þínu eins og vatni
frammi fyrir augliti Drottins,
fórnaðu höndum til hans
fyrir lífi barna þinna,
sem hníga magnþrota af hungri
á öllum strætamótum.
20Sjá, Drottinn, og lít á,
hverjum þú hefir gjört slíkt!
Eiga konur að eta lífsafkvæmi sín,
börnin sem þær bera á örmum?
Eiga myrtir að verða í helgidómi Drottins
prestar og spámenn?
21Vegnir liggja á strætunum
sveinar og öldungar.
Meyjar mínar og æskumenn
féllu fyrir sverði,
þú myrtir á degi reiði þinnar,
slátraðir vægðarlaust.
22Þú stefnir eins og á hátíðardegi
skelfingum að mér úr öllum áttum.
Á reiðidegi Drottins var enginn,
er af kæmist og eftir yrði.
Þá sem ég hefi fóstrað og uppalið,
þá hefir óvinur minn afmáð.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.